Tíma- og kostnaðarskráning

Enginn tími týnist og allt skilar sér á reikning

Einföld skráning málskostnaðar, skýrar vinnuskýrslur og reikningar án tvískráningar.

Skráðu tímann eins og þér hentar

Sláðu inn lengd, byrjun og endi eða tugabrot, í vikuyfirliti, dagatali eða beint á málinu. Tíminn fer á málið, og ef þú vilt á verkefni og verklið.

Tillögur að tímaskráningum

Vergo stingur upp á tímaskráningum út frá fundum og tölvupósti í Outlook og vinnu þinni í Vergo. Þú samþykkir, lagar eða hafnar, og tímar sem annars gleymast skila sér.

Tímar, föst gjöld og útlagður kostnaður

Allur málskostnaður á einum stað: tímagjald, föst gjöld og útlagður kostnaður með réttu vsk-þrepi, verðlagt eftir gjaldskrá stofunnar og sérkjörum viðskiptavinarins.

Frá tímaskráningu til sölureiknings

Vinnuskýrslur í PDF og Excel og sölureikningar stofnaðir beint í Payday, DK, Reglu, Business Central eða Konto, með vinnuskýrslu sem viðhengi.

Allt sem þarf til að halda utan um málskostnað

Tímaskráning sem tekur sem minnstan tíma frá vinnunni sjálfri.

Tími á mál, verkefni og verkliði

Tímar og kostnaður eru skráðir á málið sjálft, þar sem skjölin, tölvupósturinn og frestirnir eru, og má tengja við verkefni og verkliði. Þú sérð strax hvað hefur verið unnið og hvað er óreikningsfært.

Tillögur úr Outlook og Vergo

Fundir og tölvupóstur í Outlook, skjöl sem þú vannst í, verkefni og athugasemdir verða að tillögum á dagsyfirlitinu. Samþykktu þær með einum smelli eða hafnaðu.

Gervigreind aðstoðar við lýsinguna

Ýttu á Ctrl+Space í lýsingunni og fáðu tillögur að texta á vinnuskýrslu út frá fyrri lýsingum þínum og því sem þú hefur þegar skrifað.

Vikuyfirlit og dagatal

Sjáðu vinnustundirnar eftir mánuði, tveimur vikum, viku eða launatímabili, í töflu eða dagatali. Smelltu á reit til að skrá tíma og sjáðu samtölur á dag og viku.

Gjaldskrá og sérkjör

Tímagjald, föst gjöld og útlagður kostnaður sækja verð í gjaldskrá stofunnar. Sérkjör á viðskiptavin eða mál, bæði verð og afsláttur, gilda sjálfkrafa.

Unnið og til greiðslu

Skráðu unninn tíma og þann tíma sem fer á reikning sitt í hvoru lagi. Tíma má afskrifa, og mál sem ekki á að innheimta má merkja óinnheimtanleg.

Útlagður kostnaður með réttum vsk

Útlagður kostnaður er skráður án vsk, í efra þrepi (24%) eða neðra þrepi (11%) og fer á reikninginn með réttu vsk-hlutfalli.

Erlendir gjaldmiðlar

Mál geta verið í gjaldmiðli greiðandans. Færslur eru verðlagðar í þeim gjaldmiðli með gengi og jafnvirði í krónum, og reikningurinn fer út í sama gjaldmiðli.

Endurteknar færslur og afritun

Stofnaðu daglegar endurteknar færslur sem sleppa frídögum, afritaðu færslur og færðu málskostnað milli mála ef hann lenti á röngu máli.

Vinnuskýrslur

Taktu út vinnuskýrslu í PDF eða Excel fyrir allar færslur eða valdar og sendu hana viðskiptavininum í tölvupósti beint úr Vergo.

Reikningar í bókhaldskerfið

Óreikningsfærðir tímar, gjöld og kostnaður verða að sölureikningi í bókhaldskerfinu, með vinnuskýrslu sem viðhengi. Reikningsfærðar færslur læsast svo ekkert er rukkað tvisvar.

Skráðu tíma í gegnum gervigreind

Tengdu Claude, ChatGPT eða Copilot Studio við Vergo og láttu gervigreindina skrá tímann, fara yfir tillögur og taka saman hvað á eftir að reikningsfæra.

Spurningar og svör

Hvaðan koma tillögur að tímaskráningum?

Úr fundum og tölvupósti í Outlook, ef Outlook er tengt við Vergo, og úr vinnu þinni í Vergo, t.d. skjölum, verkefnum og athugasemdum á málum. Tillögurnar sjást aðeins þér og verða ekki að tímaskráningu fyrr en þú samþykkir þær.

Hvað ef tími lendir á röngu máli?

Þá færir þú málskostnaðinn á rétt mál. Óreikningsfærðum færslum má breyta, færa og afskrifa hvenær sem er.

Hvernig er verðið ákveðið?

Út frá gjaldskrá stofunnar og tímagjaldi starfsmannsins. Sérkjör á viðskiptavin eða mál ganga framar, og alltaf er hægt að breyta verði og afslætti á einstakri færslu, líka eftir á.

Get ég breytt reikningsfærðum tíma?

Nei, reikningsfærðar færslur eru læstar svo þær fari ekki aftur á reikning. Ef reikningnum er eytt í Vergo verða færslurnar aftur óreikningsfærðar og þá má breyta þeim.

Þarf ég bókhaldstengingu til að gera reikninga?

Nei, vinnuskýrslur og reikningar virka án tengingar. Með tengingu við Payday, DK, Reglu, Business Central eða Konto stofnast sölureikningurinn hins vegar beint í bókhaldskerfinu, svo ekkert þarf að slá inn aftur.

Getur hver og einn stillt skráninguna?

Já, hver starfsmaður velur hvort hann skráir lengd, byrjun og endi eða tugabrot, hver sjálfgefin lengd nýrrar skráningar er og hvaða svæði sjást í skráningarglugganum.

Við erum hérna til að hjálpa!

Þjónustusími

Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.

Sendu tölvupóst

Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.

Kíktu í heimsókn

Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.

Sími

+354 581-1700

Email

vergo@vergo.is

Staðsetning

Höfðabakki 9, 110 Reykjavík, Iceland