Gervigreindartengingar (MCP)
Fullkomnustu gervigreindir heims, með íslenskum rétti
Tengdu Claude, ChatGPT eða Microsoft Copilot Studio við Vergo. Þú heldur allri getu gervigreindarinnar sem þú notar nú þegar, og hún getur þá flett upp í íslenskum dómum, lögum, reglugerðum og úrskurðum og unnið beint með málunum þínum, tímaskráningu, verkefnum, skjölum og kröfum. Hún sér og gerir aldrei meira en þú mátt í Vergo.

Það besta úr báðum heimum
Claude, ChatGPT og Copilot eru ótrúlega öflug í að skrifa, greina og draga saman. Um íslenskan rétt hafa þau hingað til treyst á almenna vefleit, og svörin hafa verið eftir því. Með Vergo færðu réttu gögnin og alla getu gervigreindarinnar. Sjá muninn.
Allt sem gervigreindin getur
T.d. greinargerð eða minnisblað sem Word-skjal, breytingartillögur í Word (track changes), lestur á gögnum sem þú hleður upp, Outlook og SharePoint, og verkefni sem muna samhengi málsins. Þú missir ekkert af því sem gervigreindin þín getur, og færð íslenskan rétt og málin í Vergo ofan á.
Réttar heimildir, ekki vefleit
Svörin byggja á dómum Hæstaréttar, Landsréttar og héraðsdóma, lögum, reglugerðum, úrskurðum, dómum Mannréttindadómstóls Evrópu, Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins og ESB/EES-gerðum, með tengli á hverja heimild í Vergo.
Tengt daglegri vinnu
Í sama samtalinu finnur hún málið, rannsakar réttinn, vistar dómana á málið, útbýr skjalið úr sniðmáti stofunnar og skráir tímann sem fór í verkið.
Almenn gervigreind, sérhæfð lögfræðigervigreind eða Vergo
Gervigreind sem flettir upp í dómasafninu, ekki á Google
Án Vergo svarar Claude eða ChatGPT eftir minni, eða gúgglar og les bút úr nokkrum síðum. Með Vergo situr hún á bókasafninu, með dómasafnið, lagasafnið og tilvísanaskrána fyrir framan sig, og vinnur áfram í málum stofunnar.
| Almenn gervigreind Claude eða ChatGPT, án Vergo | Sérhæfð lögfræðigervigreind | Með Vergo | |
|---|---|---|---|
| Réttarheimildir | |||
| Byggir á íslenskum frumheimildum sem má opna | Stundum Það sem leitarvél finnur: dómar, fréttir eða umfjöllun | Já Úr gagnasafni lausnarinnar | Já Dómar, lög, reglugerðir og úrskurðir, með tengli á hverja heimild |
| Dómar sem vísa í tiltekið ákvæði | Nokkra Þá sem leitarvél finnur, ekki skipulegan lista | Fer eftir lausn | Já Listi úr tilvísanaskrá Vergo, niður í málsgrein |
| Lögin eins og þau voru á tilteknum degi | Sjaldnast Les yfirleitt gildandi texta | Fer eftir lausn | Já Allar útgáfur lagasafnsins frá 1. október 1995 |
| Vinnulag | |||
| Nýjustu gervigreindarlíkönin | Já Claude, ChatGPT eða Copilot | Þegar þjónustuaðilinn uppfærir Mállíkan sem hann velur | Já Um leið og þau koma út |
| Allt annað sem gervigreindin getur | Já Skrifar skjöl, les gögn sem þú hleður upp, aðrar tengingar | Það sem lausnin býður | Já Í spjallinu sem stofan notar fyrir allt annað |
| Vinnur í málakerfi stofunnar | Fer eftir tengingum | Nei | Já Vistar heimildir, skráir tíma, stofnar mál, býr til skjöl og sendir í undirritun |
Sérhæfðar lögfræðilausnir eru ólíkar. Þar sem stendur „Fer eftir lausn“ er það misjafnt milli lausna.
Sama spurning, tvö svör
„Bílslys varð í október 2019. Hver ber bótaábyrgð á tjóninu og hvernig hafa dómstólar beitt reglunni?“
Án Vergo
Gervigreindin getur hæglega byggt svarið á gildandi umferðarlögum nr. 77/2019. Þau tóku gildi 1. janúar 2020, eftir slysið, svo svarið vísar í lög sem giltu ekki þegar slysið varð. Dómarnir sem hún nefnir eru eftir minni, og þá þarf að sannreyna.
Með Vergo
Gervigreindin sér að eldri umferðarlög nr. 50/1987 giltu á slysdegi og les 88. gr. þeirra eins og hún hljóðaði þá. Hún finnur dómana sem vísa í greinina, á annað hundrað dóma Hæstaréttar og Landsréttar, því enn er dæmt eftir henni, og tekur saman niðurstöðurnar með tengli á hvern dóm.
Lögfræðirannsókn eins og lögmaður vinnur hana
Gervigreindin notar sömu leit í réttarheimildum og Lögfinnur, og skipuleggur rannsóknina sjálf.
Margar leitir í einu
Hún leitar bæði eftir orðalagi og merkingu, í mörgum leitum í einu, og les síðan þær heimildir sem skipta máli.
Les dómana í heild
Svarið byggir á texta dómsins eða laganna sjálfra, ekki bara á útdrætti.
Rekur lagatilvísanir
Finnur alla dóma og úrskurði sem vísa í tiltekna grein, t.d. 3. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, og sýnir hversu oft er vísað í hver lög.
Síar eftir þörfum
Eftir dómstól, tegund heimildar og tímabili, t.d. aðeins Landsrétt síðustu tvö ár.
Vísar í heimildir með tengli
Hver heimild opnast með einum smelli í Vergo, svo auðvelt er að lesa hana áður en byggt er á henni.
Vistar dómana á málið
Biddu hana að vista mikilvægustu heimildirnar á málið með athugasemd um af hverju þær skipta máli. Þær birtast strax undir heimildum málsins í Vergo.
Lögin eins og þau stóðu
Les lög eins og þau voru á tilteknum degi og sér sögu þeirra: hverja útgáfu, breytingarlögin og hvort lögin féllu brott.
Minni tími í umsýslu, meiri í lögfræði
Þú segir gervigreindinni hvað á að gera á venjulegu máli, hún sér um að finna réttu gögnin í Vergo.
Tímar sem annars týnast
Farðu yfir tillögur Vergo að tímaskráningu, úr Outlook-fundum, tölvupósti og vinnu í Vergo, í samtali við gervigreindina: samþykktu þær, lagaðu tíma og lýsingu eða hafnaðu þeim.
Málskostnaður og reikningsgerð
Les, skráir og leiðréttir tíma, föst gjöld og útlagðan kostnað á mál, með verði, afslætti og virðisaukaskatti af málinu og verðskránni. Hún tekur saman hvað á eftir að reikningsfæra, eftir málum og greiðendum, og skrifar texta á reikninginn. Skráningum sem komnar eru á reikning breytir hún ekki.
Ný mál og breytingar
Stofnar mál með umbjóðendum, gagnaðilum, málaflokki, merkimiðum og viðbótum, og sjálfgefin verkefni málaflokksins fylgja eins og í Vergo. Breytir málum líka, lokar þeim eða setur í bið.
Staðan á augabragði
Tekur saman stöðu máls út frá athugasemdum, eða finnur mál sem hafa staðið óhreyfð, og skrifar athugasemd á málið, t.d. samantekt af fundi eða símtali. Öll mál umbjóðanda, opin, lokuð eða í biðstöðu.
Verkefni og frestir
Les verkefni og verkliði með síum, stofnar ný verkefni og breytir fresti, ábyrgðarmanni eða stöðu.
Fyrirtökur og fundir
Les dagatal Vergo og skráir fyrirtökur og fundi á mál, færir þá til eða fellir niður. Viðburðirnir eru í Vergo, ekki í Outlook.
Tengiliðir
Flettir upp umbjóðendum, gagnaðilum og öðrum tengiliðum og notar upplýsingarnar í samhengi.
Gervigreindin sem þú þekkir
Claude, ChatGPT, Microsoft Copilot Studio, Claude Code, Codex, Cursor og önnur tól sem styðja MCP (Model Context Protocol), opinn staðal fyrir tengingar gervigreindar við kerfi. Í Claude er Vergo í tengingasafninu.
Skjöl, undirritanir og kröfur
Frá sniðmáti að undirrituðu skjali, og frá kröfu að vöxtum, í sama samtalinu.
Skjöl úr sniðmátum
Býr til skjal á málið úr sniðmátum stofunnar, fyllt út með upplýsingum málsins, sem Word eða PDF. Hún segir þér fyrir fram hvað vantar á málið, t.d. netfang eða kennitölu umbjóðanda.
Ný sniðmát
Skrifar sniðmát með þér, með réttu færibreytunum og sniðinu, yfirfer þau og vistar í sniðmátum stofunnar, eða lagar sniðmát sem fyrir eru. Krefst heimildar til að sýsla með sniðmát.
Rafræn undirritun
Sendir skjöl málsins í undirritun með rafrænum skilríkjum, í tölvupósti eða SMS, minnir þá á sem eiga eftir að undirrita og fylgist með hverjir hafa undirritað.
Skaðabótakröfur
Stofnar og uppfærir skaðabótakröfur með tjónsdegi, stöðugleikapunkti, miskastigi, örorkustigi og tekjum, og sýnir útreikning Vergo á hverjum lið skaðabótalaga með vöxtum.
Innheimta
Stofnar innheimtukröfur með kröfuhafa, skuldara og kröfuliðum, skráir innborganir og sýnir stöðuna með vöxtum og kostnaði.
Vaxtareiknir
Reiknar dráttarvexti, skaðabótavexti eða fasta vexti með vöxtum Seðlabankans, eins og vaxtareiknir Vergo, og sýnir hvert tímabil, vaxtadaga og hvernig innborganir ganga upp í kröfuna.
Prófaðu að spyrja
Því nákvæmari spurning, því betra svar: nefndu lagagrein, dómstól eða tímabil.
Rannsókn
„Hvaða dómar Landsréttar hafa fallið um 26. gr. skaðabótalaga síðustu tvö ár? Taktu saman niðurstöðurnar.“
Minnisblað
„Finndu dóma um 36. gr. samningalaga og ósanngjarna skilmála í lánasamningum, og skrifaðu minnisblað sem Word-skjal.“
Mannréttindadómstóllinn
„Hvaða dómar MDE gegn Íslandi hafa fallið um tjáningarfrelsi, og hvernig hafa íslenskir dómstólar brugðist við?“
Lögin þá og nú
„Hvernig hljóðaði 1. gr. erfðalaga árið 2005 og hvernig hljóðar hún í dag? Berðu saman.“
Vistun á mál
„Vistaðu þrjá helstu dómana á mál 2026-123.“
Reikningsgerð
„Hvað er óreikningsfært á máli 2026-123? Skrifaðu texta á reikninginn.“
Tímaskráning
„Hversu marga tíma skráði ég í síðustu viku?“
Nýtt mál
„Stofnaðu mál fyrir Jón Jónsson gegn Tryggingafélaginu hf., málaflokkur skaðabótamál, og skrifaðu athugasemd með samantekt af fundinum.“
Skjal í undirritun
„Búðu til umboð á mál 2026-123 úr sniðmátinu okkar, sem PDF, og sendu það umbjóðandanum í undirritun.“
Vextir
„Reiknaðu dráttarvexti af 1.500.000 kr. frá 1. mars 2025 til dagsins í dag.“
Örugg og undir þinni stjórn
Tengingarnar eru byggðar á OAuth, sama staðli og innskráning hjá Microsoft og Google. Nánar um persónuvernd, áskriftarleiðir og hvað stofur ættu að passa í greininni Öryggi og persónuvernd í gervigreindartengingum.
Innskráning með Vergo-aðganginum
Þú tengir með venjulegri innskráningu í Vergo. Lykilorðið þitt fer aldrei til gervigreindarinnar.
Getur aldrei meira en þú
Gervigreindin sér og gerir aðeins það sem þú mátt sjálf(ur) í Vergo, og aðeins í þeim fyrirtækjum sem þú tengdir.
Fyrirtækið ræður
Slökkt er á tengingum þar til stjórnandi kveikir á þeim. Stjórnandi velur hvað má eftir sviðum, t.d. aðeins leit í réttarheimildum, og þá fara engar upplýsingar um mál eða umbjóðendur til gervigreindarinnar.
Skjöl aðeins ef kveikt er á því
Lestur skjala fylgir ekki „Leyfa allt“: stjórnandi kveikir sérstaklega á honum. Skjal úr SharePoint sendir Vergo aðeins í undirritun ef þú mátt opna það, og gervigreindin fær ekki innihald þess.
Þú velur hvað má
Við tengingu velur þú hvaða aðgerðir gervigreindin fær. Aðgerðir sem breyta gögnum eru sérmerktar, svo gervigreindartólið biður þig um leyfi áður en þær keyra, nema þú leyfir þeim að keyra sjálfkrafa.
Allt skráð á þig
Allt sem gervigreindin skráir eða breytir er skráð á þig, eins og þú hefðir gert það sjálf(ur). Hún eyðir hvorki málum, verkefnum, kröfum né sniðmátum.
Öll fyrirtækin þín í einni tengingu
Ertu í fleiri en einu fyrirtæki? Hakaðu við þau þegar þú tengist og veldu sjálfgefið fyrirtæki. Hvert fyrirtæki ræður sínum stillingum og aðgangi, og stjórnendur hvers fyrirtækis sjá og stýra bara sinni tengingu.
Yfirsýn og aftenging
Allar tengingar sjást í Stillingum undir Tengingar, með hver tengdi og hvenær tengingin var síðast notuð. Þú getur aftengt hvenær sem er, og stjórnendur hvaða tengingu sem er í fyrirtækinu. Aftenging tekur strax gildi.
Svona tengist þú
Skref 1: Stjórnandi kveikir á tengingum
Í Stillingar › Tengingar › Fyrirtækjatengingar, og velur hvað tengingar mega.
Skref 2: Bættu Vergo við gervigreindina
Í Claude er Vergo í tengingasafninu: opnaðu Settings › Connectors, leitaðu að Vergo og smelltu á Connect. Í ChatGPT, Copilot Studio og öðrum tólum setur þú inn slóðina https://api.vergo.is/mcp (í Copilot Studio sem MCP-tól á umboðsmanninum); leiðbeiningar eru í Vergo undir Stillingar › Tengingar › AI-biðlarar.
Skref 3: Skráðu þig inn og samþykktu
Skráðu þig inn í Vergo, veldu fyrirtæki og hvað gervigreindin má gera, og smelltu á Leyfa. Þá er hún tilbúin.
Spurningar og svör
Hvað er MCP?
Model Context Protocol er opinn staðall sem gerir gervigreindartólum kleift að tengjast kerfum eins og Vergo á öruggan og stýrðan hátt. Claude, ChatGPT, Microsoft Copilot Studio og mörg fleiri tól styðja hann.
Hver er munurinn á þessu og Lögfinni?
Lögfinnur er gervigreind Vergo, innbyggð í kerfið. Með MCP notar þín eigin gervigreind sömu leit í réttarheimildum, og getur auk þess unnið með mál, verkefni, tengiliði og málskostnað, og skrifað skjöl eins og stóru gervigreindirnar gera.
Leitar gervigreindin í Vergo eða á netinu?
Í Vergo þegar spurningin kallar á það. Ef hún leitar samt á netinu, nefndu Vergo í spurningunni, t.d. „Leitaðu í réttarheimildum Vergo að …“
Getur Claude eða ChatGPT ekki bara leitað á vefnum?
Jú, og vefleit á vel við fréttir, almennar upplýsingar og erlendan rétt. En hún finnur ekki alla dóma um ákvæði, sýnir sjaldnast lögin eins og þau voru og blandar fréttum og bloggum saman við frumheimildir. Það má nota hvort tveggja: Vergo fyrir íslenskar réttarheimildir og vefinn fyrir hitt. Sjá muninn.
Les gervigreindin gildandi lög eða lögin eins og þau voru?
Hvort tveggja. Spurðu um atvik á tilteknum tíma og hún les lögin eins og þau stóðu þá, líka lög sem hafa verið felld úr gildi síðan. Saga lagasafnsins í Vergo nær aftur til 1. október 1995.
Hvert fara gögnin?
Þegar gervigreindin sækir gögn úr Vergo eru þau send til þeirrar gervigreindarþjónustu sem þú notar og falla undir skilmála hennar. Kynntu þér stefnu fyrirtækisins um notkun gervigreindar áður en þú tengir. Nánar í greininni Öryggi og persónuvernd í gervigreindartengingum.
Eru gögnin notuð til þjálfunar?
Í fyrirtækjaáskriftum (Claude Team og Enterprise, ChatGPT Business og Enterprise) eru gögn sjálfgefið ekki notuð til þjálfunar, og við mælum með þeim fyrir lögmannsstofur. Í einstaklingsáskrift þarf að slökkva á því í persónuverndarstillingum.
Fara upplýsingar um umbjóðendur til gervigreindarinnar?
Ekki við rannsóknir á réttarheimildum. Mál, tengiliðir, athugasemdir, tímaskráningar, skaðabóta- og innheimtukröfur fela hins vegar í sér gögn umbjóðenda, svo fylgdu reglum stofunnar um hvað má vinna með í gervigreind.
Get ég tengt fleiri en eitt fyrirtæki?
Já. Ef þú ert í fleiri en einu fyrirtæki í Vergo hakar þú við þau þegar þú tengist, og gervigreindin vinnur í því fyrirtæki sem þú biður um.
Hvað með skjöl í SharePoint?
Gervigreindin finnur möppu málsins. Skjölin les hún sem þú, með Microsoft 365 tengingu eða úr OneDrive-samstilltu afriti á tölvunni, svo aðgangsstýringar SharePoint gilda áfram. PDF-skjal úr möppunni sendir Vergo aðeins í undirritun ef SharePoint leyfir þér að opna það, og gervigreindin fær ekki innihald þess. Hún breytir engu í SharePoint: skjöl sem hún býr til úr sniðmátum og undirrituð afrit vistast í Vergo.
Getur gervigreindin breytt gögnum án minnar vitundar?
Hún getur aðeins það sem þú leyfir við tengingu og fyrirtækið leyfir. Aðgerðir sem breyta gögnum eru sérmerktar og gervigreindin er beðin um að staðfesta þær með þér áður en hún framkvæmir þær. Það er þó gervigreindartólið sem spyr, svo leyfðu ekki aðgerðum sem breyta gögnum að keyra sjálfkrafa („Always allow“). Hún eyðir hvorki málum, verkefnum, kröfum né sniðmátum.
Getur gervigreindin sent skjal í undirritun upp á sitt eindæmi?
Ekki nema þú leyfir það. Undirritendur fá strax tölvupóst eða SMS, svo hún er beðin um að sýna þér skjölin, undirritendurna og skilaboðin og fá skýrt já áður en hún sendir. Ef þú stillir sendinguna á að keyra sjálfkrafa kemur engin staðfesting. Þú þarft líka heimild til undirritana í Vergo.
Getur gervigreindin gert mistök?
Já. Lestu heimildirnar sem hún vísar í áður en þú byggir á þeim; tengillinn opnar hverja þeirra beint í Vergo.
Við erum hérna til að hjálpa!
Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.
Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.
Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.
+354 581-1700
vergo@vergo.is
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík, Iceland