Öryggis- og persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 10. nóvember, 2026
1. UM STEFNUNA
Vergo ehf., kt. 490318-0110, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík (hér eftir „Vergo“), þróar og rekur hugbúnaðarlausnina Vergo (hér eftir „kerfið“). Stefnan lýsir því hvernig Vergo fer með persónuupplýsingar og tryggir öryggi þeirra, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðina (ESB) 2016/679. Stefnan sætir reglulegri endurskoðun og breytingar á henni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu Vergo.
2. HLUTVERK VERGO
Vergo kemur fram í tveimur hlutverkum:
- Sem vinnsluaðili vinnur Vergo með þær upplýsingar sem viðskiptavinir og notendur á þeirra vegum vista í kerfinu. Viðskiptavinurinn er þá ábyrgðaraðili og Vergo vinnur einungis samkvæmt fyrirmælum hans og vinnslusamningi aðila.
- Sem ábyrgðaraðili vinnur Vergo með upplýsingar um tengiliði viðskiptavina, þjónustubeiðnir, heimsóknir á vefsíður Vergo og um eigin starfsmenn og umsækjendur um störf.
3. UPPLÝSINGAR Í KERFINU
Upplýsingarnar í kerfinu eru fyrst og fremst um umbjóðendur og aðra viðskiptavini viðskiptavina Vergo, gagnaðila, tjónþola og aðra sem tengjast málum, verkum eða kröfum. Þær ná einnig til skjala, tíma- og kostnaðarskráninga, notendaupplýsinga starfsmanna viðskiptavina og atvikaskráa um notkun kerfisins.
Kerfið getur geymt viðkvæmar persónuupplýsingar og upplýsingar um refsiverða háttsemi, kjósi viðskiptavinur að vista þær. Vergo gerir aldrei kröfu um að fá slíkar upplýsingar afhentar.
Vergo notar upplýsingarnar einungis til að veita þjónustuna. Þær eru hvorki seldar né notaðar til að þjálfa gervigreindarlíkön. Við lok samnings eru gögnin afhent viðskiptavini og þeim síðan eytt, eins og nánar er kveðið á um í þjónustusamningi.
4. VINNSLA ÞAR SEM VERGO ER ÁBYRGÐARAÐILI
| Upplýsingar | Tilgangur | Heimild |
|---|---|---|
| Nafn, netfang og símanúmer tengiliða viðskiptavina | Samningsgerð, þjónusta og reikningagerð | Samningur og lögmætir hagsmunir |
| Þjónustubeiðnir og samskipti | Aðstoð við notendur | Lögmætir hagsmunir |
| Innskráningar og atvikaskrár | Öryggi kerfisins og varnir gegn misnotkun | Lögmætir hagsmunir |
| Heimsóknir á vefsíður og fyrirspurnir í spjalli | Rekstur vefsins og svör við fyrirspurnum | Lögmætir hagsmunir; samþykki fyrir ónauðsynlegar kökur |
| Umsóknir um störf | Ráðningar | Ráðstafanir að beiðni umsækjanda |
Vergo varðveitir þessar upplýsingar ekki lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar. Upplýsingar um tengiliði eru varðveittar á meðan samningssamband varir og bókhaldsgögn í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald.
5. UNDIRVINNSLUAÐILAR OG MIÐLUN
Vergo miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema samkvæmt fyrirmælum viðskiptavinar, lagaskyldu eða úrskurði dómstóls eða stjórnvalds.
Vergo notar undirvinnsluaðila við rekstur kerfisins og þjónustu við notendur. Þeir eru bundnir sömu skyldum um persónuvernd og Vergo og er yfirlit yfir þá í vinnslusamningi Vergo við hvern viðskiptavin.
Gögn í kerfinu eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
6. GERVIGREIND
Gervigreindarvirkni í kerfinu. Lögfinnur og önnur gervigreindarvirkni í kerfinu nota mállíkön sem keyrð eru hjá undirvinnsluaðilum Vergo innan EES. Gögn viðskiptavina eru ekki notuð til að þjálfa líkönin, hvorki af Vergo né undirvinnsluaðilum. Undirvinnsluaðilar geta þó geymt fyrirspurnir tímabundið til að greina misnotkun.
Tengingar við gervigreindarforrit. Viðskiptavinir geta tengt gervigreindarforrit eins og Claude, ChatGPT eða Microsoft Copilot við kerfið. Slíkar tengingar eru óvirkar þar til stjórnandi viðskiptavinar kveikir á þeim. Það sem gervigreindarforritið sækir úr kerfinu fer til þess sem rekur það, samkvæmt fyrirmælum viðskiptavinarins og samningi hans við þjónustuveitandann, og er Vergo ekki aðili að þeim samningi. Nánar er fjallað um þetta í greininni Öryggi og persónuvernd í gervigreindartengingum.
7. GAGNAÖRYGGI
Vergo gætir öryggis upplýsinga með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum, meðal annars:
- Gögn eru dulkóðuð bæði í flutningi (TLS) og í geymslu.
- Sjálfgefið er að notendur séu með tveggja þrepa auðkenningu, þ.e. þeir auðkenna sig aukalega í kjölfar innskráningar með einnota lykilorði sem sent er í sms skilaboði eða tölvupósti.
- Gerð er krafa um sterk lykilorð.
- Lykilorð geymd á öruggu og óafturkræfu formi (e. hashed passwords).
- Starfsmenn Vergo fá aðeins aðgang að gögnum viðskiptavina þegar það er nauðsynlegt til að afgreiða þjónustubeiðni eða sinna viðhaldi.
- Takmarkaður aðgangur að stjórnunaraðgangi raunumhverfis.
- Öll hýsing Vergo, bæði kerfið sjálft og gögn þess, er hjá Microsoft Azure, sem hefur hlotið alþjóðlegar vottanir á borð við ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27018.
- Starfsemi Vergo er grundvölluð á ákvæðum staðalsins ISO/IEC 27001 um upplýsingaöryggi.
- Vergo tryggir trúnað, áreiðanleika, tiltækileika og álagsþol þeirra kerfa sem notuð eru og þeirrar þjónustu sem boðið er upp á.
- Vergo heldur raunhæfum möguleikum á að endurvekja tiltækileika og aðgang að gögnum innan viðeigandi tímamarka í kjölfar fráviks, hvort sem það er raunlægs eða tæknilegs eðlis.
- Vergo tryggir að afritunartaka fari fram á öllum gögnum kerfisins.
- Aðgerðir notenda og tenginga eru skráðar í atvikaskrár og stjórnendur viðskiptavina sjá virkar tengingar og geta aftengt þær.
- Allir starfsmenn Vergo skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu svo trúnaður helst þótt látið sé af störfum, og fá reglulega fræðslu um öryggi og persónuvernd.
- Allar vinnustöðvar Vergo eru dulkóðaðar.
- Vergo tryggir sjálfvirka læsingu vinnustöðva þegar þær eru ekki í notkun.
- Fýsísk gögn sem innihalda trúnaðarupplýsingar eru geymd í lokuðum hirslum.
- Tryggð er fullnægjandi eyðing skjala og stafrænna gagna. Leitast er við að halda fýsískum gögnum í lágmarki.
8. RÉTTINDI EINSTAKLINGA
Einstaklingar eiga rétt á aðgangi að upplýsingum um sig og til leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar vinnslu og flutnings upplýsinga, og rétt til að andmæla vinnslu. Varði beiðni upplýsingar sem viðskiptavinur Vergo hefur vistað í kerfinu, t.d. hjá lögmannsstofu, ber að beina henni til þess viðskiptavinar. Berist Vergo slík beiðni er hún framsend til hans.
9. FYRIRSPURNIR OG KVARTANIR
Fyrirspurnir varðandi persónuverndarmál má senda á netfangið vergo@vergo.is. Telji einstaklingur vinnslu persónuupplýsinga ekki samræmast persónuverndarlögum getur hann kvartað til Persónuverndar, www.personuvernd.is.